Tillögurnar stuðli að sátt um uppbyggingu vindorkunýtingar

sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Stjórn Samtaka orkusveitarfélaga fékk í dag kynningu á tillögum starfshóps um vindorku sem einnig voru kynntar á blaðamannafundi í dag.

Tillögurnar voru unnar fyrir tilstilli Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og var markmið starfshópsins að koma með tillögur að umgjörð á uppbyggingu vinorkunýtingar á Íslandi, þar sem litið yrði til áherslu um að slík orkuver byggist upp á afmörkuðum svæðum nærri tengivirkjum og flutningslínum þar sem unnt yrði að tryggja afhendingaröryggi og lágmarka umhverfisáhrif. Þá var lögð áhersla á að vinna starfshópsins myndi leiða til þess að breið sátt geti ríkt um uppbyggingu vindorkuvera.

Samtökin komu álitamálum á framfæri
Stjórn Samtaka orkusveitarfélaga fundaði með starfshópnum á meðan á vinnunni stóð og kom á framfæri þeim álitamálum er tengjast uppbyggingu vindorku á Íslandi, meðal annars er snúa að skipulagsvaldi sveitarfélaga, skilgreiningu nærumhverfis, álitamál er varða tekjur nærsamfélagsins af virkjanakosti af þessu tagi og mörgum fleiri álitamálum. Í tilkynningu frá stjórn Samtaka orkusveitarfélaga er starfshópnum sem og ráðherra þakkað fyrir gott samstarf, opið og gott samtal sem mun halda áfram þar til Alþingi afgreiðir málið.

Skipulagshlutverk sveitarfélaga sé virt
„Stjórn Samtaka orkusveitarfélaga mun taka málið fyrir og veita umsögn þegar það kemur í heild sinni í samráðsgátt stjórnvalda en vill koma því á framfæri að við teljum að með þessum tillögum sé sannarlega verið að stuðla að sátt um uppbyggingu vindorkunýtingar,“ segir í tilkynningunni og því bætt við að starfshópurinn hafi náð vel utan um álitamál er varða uppbyggingu vindorkunýtingar, svo sem hvort slík verkefni eigi heima innan eða utan ramma, leggja til að skipulagshlutverk sveitarfélaga sé virt, horft er til umhverfis og náttúruverndarsjónarmiða svo sem með útilokun svæða, auk þess sem ávarpaðar hafi verið leiðir til forgangsröðunar uppbyggingar og fleira.

„Stjórn Samtaka orkusveitarfélaga telur að almenn umræða um vindorkunýtingu hafi þroskast og að fyrirsjáanlegt sé að hægt verði að vinna málið til enda svo um það ríki almenn sátt,“ segir að lokum í tilkynningunni.

Fyrri grein„Rólegur og afslappaður jólaandi“
Næsta greinJólatónlistarveisla í notalegu umhverfi