Þúsund íbúa markinu náð í Hrunamannahreppi

Flúðir. Ljósmynd/Hera Hrönn Hilmarsdóttir

Íbúar Hrunamannahrepps eru í dag 1.014 talsins, en voru 982 í desember 2025. Þeim hefur því fjölgað um 32, eða um 3,2% á árinu sem er að líða samkvæmt Þjóðskrá.

„Þetta er ánægjuleg þróun sem gefur tilefni til bjartsýni og skapar tækifæri til að efla samfélagið enn frekar. Verslun og þjónusta mun styrkjast með fleiri íbúum. Fleiri munu taka þátt í félagsstarfi og fleiri íbúar geta einnig skapað ný tækifæri í atvinnulífinu. Nýir íbúar færa með sér þekkingu, reynslu og hugmyndir sem geta nýst samfélaginu öllu,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir, sveitarstjóri,

„Hér búa fjölmargir af erlendum uppruna. Því verðum við að muna að fjölmenning er mikilvægur styrkur. Fólk með ólíkan bakgrunn, tungumál og hefðir auðgar mannlífið og gefur okkur tækifæri til að læra hvert af öðru. Með opnum hug, gagnkvæmri virðingu og góðum samskiptum getum við byggt upp samfélag þar sem allir finna að þeir tilheyra og hafa tækifæri til að taka þátt,“ bætir Aldís við en 38 prósent íbúa Hrunamannahrepps eru erlendir ríkisborgarar.

Fyrri greinAlvarlegt umferðarslys á Hellisheiði