Þrjú útköll í Þórsmörk

Ljósmynd/Landsbjörg

Í gær voru björgunarsveitir á Hvolsvelli og Hellu kallaðar inn í Þórsmörk vegna einstaklings sem hafði slasast á gönguleið við Merkurrana og Valahnúk.

Á leið í það útkall bárust tvö önnur, annars vegar um fastan bíl í Krossá, og hins vegar um örmagna göngufólk við Réttarnef.

Björgunarfólk gekk upp að þeim sem hafði slasast við Merkurrana, verkjastillti og kom í börur. Viðkomandi var svo fluttur niður og í bíl björgunarsveitar sem flutti hann til móts við sjúkrabíl.

Þá var að losa bílinn sem hafði fest sig í Krossá, og gekk það þrautalaust fyrir sig. Á meðan fór skálavörður Ferðafélagsins, sem jafnframt er félagi í björgunarsveit og sótti hið örmagna göngufólk og ók að bíl þeirra.

Fyrri greinVegabréf Fischers komin á Selfoss
Næsta greinKótelettan