Þórdís ráðin bæjarritari og sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs

Þórdís Sif Sigurðardóttir. Ljósmynd/Aðsend

Þórdís Sif Sigurðardóttir hefur verið ráðin bæjarritari og sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs hjá Sveitarfélaginu Árborg. Hún hefur störf hjá sveitarfélaginu í júní.

Þórdís Sif er með BSc próf í viðskiptalögfræði og meistarapróf í lögfræði.

Hún hefur langa og víðtæka reynslu af því að starfa við stjórnsýslu sveitarfélaga, hún starfaði í sjö ár sem bæjarritari og sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs Ísafjarðarbæjar ásamt því að hafa starfað sem sveitarstjóri Borgarbyggðar og nú síðast sveitarstjóri Vesturbyggðar.

Fyrri greinVersluninni Borg lokað
Næsta greinÖll tilboð í uppsteypu hreinsistöðvarinnar yfir áætlun