Þingað um skólamál við ströndina

Um 50 manns sóttu skólaþing um framtíð skólastarfs á Eyrarbakka og Stokkseyri sem haldið var 19. október. Ljósmynd/Árborg

Um 50 manns sóttu skólaþing um framtíð skólastarfs á Eyrarbakka og Stokkseyri sem haldið var á Stokkseyri á dögunum. Tilgangur fundarins var að skapa vettvang fyrir samtal um framtíð skólastarfs við ströndina.

Sérstaklega var óskað eftir þátttöku foreldra og forráðamanna nemenda í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri og foreldra elstu barna í leikskólanum Strandheimum. Einnig var kennurum og öðru starfsfólki skólanna, sveitarstjórnarfulltrúum og nefndarmönnum boðið að taka þátt.

Áhersla var lögð á að ólík sjónarmið fengju að heyrast og að reynsla og hugmyndir skólasamfélagsins nýttust við undirbúning ákvarðana um framtíðarskipulag skólastarfsins. Viðfangsefni samtalsins voru meðal annars framtíð skólahúsnæðis á Eyrarbakka og Stokkseyri og hvernig áfram megi efla gæði náms, kennslu og skólastarfs í heild.

„Sameiginlegt markmið er að börnum líði vel, að þau fái góða menntun og tækifæri til að vaxa, læra og dafna í öruggu og hvetjandi umhverfi. Með velferð, nám og framtíð barnanna að leiðarljósi er stefnt að því að leggja grunn að sameiginlegri sýn á öflugt og farsælt skólastarf á Eyrarbakka og Stokkseyri,“ segir í tilkynningu frá Sveitarfélaginu Árborg.

Eva Magnúsdóttir frá Podium stýrði skólaþinginu og mun vinna niðurstöður þess í framhaldinu.

Eva Magnúsdóttir frá Podium, Guðrún Jóhannsdóttir, skólastjóri Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri og Heiða Ösp Kristjánsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs hjá Sveitarfélaginu Árborg. Ljósmynd/Árborg
Fyrri grein„Mig langaði að sýna sveitina eins og hún er“