
Hrekkjavakan er haldin hátíðleg á Selfossi í dag eins og víðar. Sumir láta sér nægja að skreyta heimilið sitt og taka brosandi á móti börnum með nammiskál á meðan aðrir ganga skrefinu lengra í hryllingnum.
Þeirra á meðal eru hjónin Bjarnheiður Böðvarsdóttir og Brynjar Ingi Magnússon sem búa í Sigtúni 9 á Selfossi. Undanfarin ár hafa þau breytt garðinum sínum í hrylllingsgarð sem hefur verið sérlega vinsæll staður til að heimsækja á hrekkjavökunni – hjá þeim sem þora.
„Þemað í ár eru hræðilegir trúðar og breytist garðurinn okkar því í trúðagarð á hrekkjavökunni,“ segir Brynjar í samtali við sunnlenska.is.
Náttúrulega draugalegur garður
Brynjar segir að hugmyndin um að breyta garðinum fyrir hrekkjavökuna hafi kviknað fljótlega eftir að þau fluttu í Sigtúnið. „Þá kemur fljótlega í ljós að þessi garður er svolítið draugalegur að sjálfu sér í myrkrinu á veturna,“ segir Brynjar en þetta er í fjórða sinn sem garðurinn þeirra umbreytist í hryllingsgarð á hrekkjavökunni. Í fyrra heimsóttu um 900 manns hryllingsgarðinn.

„Ég fór í það að breyta garðinum í hryllingsgarð og hef mjög gaman að þessu. Ég er kannski svolítill fanatíkus í þessu, það segir konan allavegana,“ segir Brynjar og glottir.
„Hann er að panta dót fyrir hrekkjavökuna mánuðina á undan,“ bætir Bjarnheiður við en það hefur verið mál manna að skreytingarnar í garðinum hafi verið einstaklega metnaðarfullar – og hræðilegar.

Mikilvægt að fá ekki öryggi í fjöldanum
Hryllingsgarðurinn er samvinnuverkefni fjölskyldunnar og hefur fjölskyldufaðurinn sérlega gaman af verkefninu.
„Mér finnst rosalega gaman að gera þetta því að eldri börnin okkar tvö taka þátt í þessu með okkur. Við erum alltaf með leikara, það eru börnin okkar og vinir þeirra sem koma og hjálpa okkur að hræða gestina,“ segir Brynjar.

„Við reynum alltaf að senda bara tvo þrjá í einu inn í garðinn, til að þess að krakkarnir fái ekki öryggi í fjöldanum að labba í gegn, þá er það áhrifaríkara. Það eru alltaf einhverjir sem fara að gráta en það eru ekkert voðalega margir enda er það ekkert aðal takmarkið. Takmarkið er bara að fólki bregði og verði svolítið hrætt,“ segir Brynjar og Bjarnheiður bætir því við að það hafi komið fyrir að leikurunum hafi verið ýtt í burtu því að einhverjir urðu svo hræddir.
Þrátt fyrir stóran garð, miklar skreytingar og mikinn hrylling þá er Brynjar ekki lengi að standsetja garðinn fyrir stóra daginn.
„Við erum yfirleitt tvo daga að undirbúa garðinn. Byrjum kannski græja þetta daginn áður og klárum svo á hrekkjavökudaginn sjálfan,“ segir Brynjar að lokum.

Hrekkjavakan verður sí vinsælli
Þess má geta að þátttaka í hrekkjavökunni á Selfossi verður sífellt meiri. Þau heimili sem vilja taka á móti börnum geta annað hvort sett grasker, ljós eða kerti fyrir utan heimilið sitt. Einnig er hægt að skrá heimilið sitt inn á sérstakt skjal sem má finna í Facebook-grúppunni Hrekkjavakan á Selfossi. Gengið verður í hús á milli klukkan 18:00 og 20:00 í kvöld, laugardag.
