„Svipað mikill áhugi fyrir fléttunum og bjórnum“

Halldóra Baldvinsdóttir, eigandi Ópus Studio. sunnlenska.is/Jóhanna Petersen

Hárgreiðslunámskeiðið Bjór og fléttur hefur heldur betur slegið í gegn síðan það hóf göngu sína í október. Á námskeiðinu læra feður stúlkna að greiða og flétta hár þannig að dæturnar skarti sómasamlegri hárgreiðslu.

Það er hárgreiðslustofan Ópus Studio í Hveragerði sem stendur fyrir námskeiðinu. Uppselt hefur verið á öll fjögur námskeiðin og stendur til að bæta fleiri við. Einnig stendur til að halda námskeið í nærliggjandi sveitarfélögum.

„Ég hafði hugsað mér lengi að vera með námskeiðahald. Ég er með ýmsar hugmyndir í kollinum, meðal annars svona pabbanámskeið og svo förðunarnámskeið og greiðslunámskeið fyrir konur. Það er nú yfirleitt maður sjálfur sem heldur aftur að sér og kannski hefur ekki trú á að nokkur sýni áhuga,“ segir Halldóra Baldvinsdóttir, eigandi Ópus Studio, í samtali við sunnlenska.is.

„Laufey á Ölverk sendi svo á mig fyrir einhverjum mánuðum myndbönd af TikTok þar sem er sýnt frá svona pabbanámskeiði úti í heimi. Við ákváðum bara að taka höndum saman og keyra þetta í gang,“ segir Halldóra en námskeiðin eru haldin á Ölverk sem er við hliðina á Ópus Studio við Breiðumörkina í Hveragerði.

Námskeiðið hefur heldur betur slegið í gegn og er oft mikil stemning í mönnum. sunnlenska.is/Jóhanna Petersen

Strákakvölds-fílingur
Hvert námskeið er einn og hálfur tími og hefur hver og einn stelpupabbi sérstakan dúkkuhaus til að æfa sig að greiða. „Við förum yfir öll helstu atriði um hvernig sé best að greiða hár og undirbúa það fyrir fallega greiðslu. Svo kenni ég fléttutækni og ýmis leynitrikk.“

„Viðtökurnar hafa farið langt fram úr öllum mínum vonum og væntingum! Það er eiginlega bara brjálæðislega mikil eftirspurn og miklu meiri spenningur fyrir svona námskeiði en mig nokkurntímann grunaði! Ég held líka að það spili inn í að það er svolítill „boys night“ bragur á þessu. Létt andrúmsloft og stemning í mönnum og bara svipað mikill áhugi fyrir fléttunum og bjórnum,“ segir Halldóra og hlær.

Halldóra þurfti að bæta við námskeiðum þar sem eftirspurnin var svo mikil. „Ég er svo að vinna í að græja fleiri dagsetningar hér í Hveragerði og svo í framhaldinu í Reykjavík líka. Það er hægt að fylgjast með komandi námskeiðum á samfélagsmiðlum Ópus Studio og svo er skráning á Noona appinu,“ segir Halldóra að lokum.

Halldóra sýnir stelpupöbbunum réttu handtökin. sunnlenska.is/Jóhanna Petersen
Fyrri greinHáskólafélagið fékk rekstrarstyrk fyrir Fjölheima