Sviðið er sproti ársins í sunnlenskri ferðaþjónustu

Hlynur Friðfinnsson og Ólöf Arna Gunnlaugsdóttir veittu Sprota ársins viðtöku fyrir hönd Sviðsins og þau eru hér ásamt Ragnhildi Sveinbjarnardóttur, framkvæmdastjóra Markaðsstofunnar. Ljósmynd/Markaðsstofa Suðurlands

Markaðsstofa Suðurlands veitti á dögunum árlegar viðurkenningar fyrir vel unnin störf í ferðaþjónustu á Suðurlandi.

Annars vegar er veitt viðurkenning fyrir Sprota ársins, sem er fyrir árangursríka og lofandi nýsköpun í ferðaþjónustu, og hins vegar fyrir framlag til ferðaþjónustu sem veitt er fyrir ötult starf til margra ára í þágu ferðaþjónustu á Suðurlandi.

Viðurkenninguna Sproti ársins 2024 hlaut Sviðið á Selfossi. Sviðið hefur auðgað menningarlíf Suðurlands og á undraskömmum tíma hefur því tekist að stimpla sig inn sem vettvang fyrir samkomur, tónleika og fjölbreyttar sýningar með metnaðarfullum viðburðum allt árið um kring. Með slíkum viðburðum skapast aukin eftirspurn eftir gistingu, vöru og þjónustu í nærumhverfinu og styður Sviðið þannig við þróun Selfoss sem áfangastaðar ferðamanna.

Viðurkenninguna fyrir framlag til ferðaþjónustu 2024 hlutu Elías Guðmundsson og Vilborg Smáradóttir fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu í Mýrdalshreppi síðustu áratugi. Þau hafa sýnt áræðni, elju og framsýni, skapað fjölbreytt störf og lagt sitt af mörkum fyrir samfélagið. Frá því að þau og fleiri hófu öfluga uppbyggingu í Mýrdalnum hefur íbúafjöldi í Mýrdalshreppi margfaldast, með þeim tækifærum og áskorunum sem því fylgja. Elías rekur í dag fjölbreytta gistingu og veitingasölu, íbúðir og fleira í Vík.

Fyrri greinÓlafur Elí tilnefndur til Íslensku lýðheilsuverðlaunanna
Næsta greinGuðbjörg ráðin framkvæmdastjóri Set