Sveitarstjórnin tilbúin að endurskoða gjaldskrárhækkanir

Hella. Ljósmynd/Rangárþing ytra

Sveitarstjórn Rangárþing ytra fagnar því að náðst hafi samningar á almennum markaði og að búið sé að leggja línurnar fyrir komandi kjarasamninga á opinberum markaði.

Á fundi sveitarstjórnar í gær var tekin fyrir áskorun Sambands íslenskra sveitarfélaga og tillögur ríkisstjórnarinnar vegna kjarasamninga sem undirritaðir voru á dögunum.

Tillögurnar gera meðal annars ráð fyrir gjaldfrjálsum máltíðum í grunnskólum og að börn fái leikskólavistun frá og með 12 mánaða aldri.

Rangárþing ytra hefur um nokkurra ára skeið boðið upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir í grunnskólum sveitarfélagsins auk þess sem börn fá leikskólavistun frá 12 mánaða aldri að því gefnu að öll stöðugildi séu mönnuð. Einnig býður sveitarfélagið foreldrum barna frá 12–24 mánaða upp á að sækja um mánaðarlegar heimgreiðslur til að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla séu börnin ekki á leikskóla á sama tímabili.

Í tilkynningu frá sveitarfélaginu segir að sveitarstjórn lýsi einnig vilja sínum til að endurskoða gjaldskrárhækkanir 2024 til að koma til móts við forsendur nýrra kjarasamninga.

Fyrri greinHéraðsþing HSK haldið í Árnesi í þriðja sinn
Næsta greinAðalbjörg og Eyvindur hlutu Landbúnaðarverðlaunin 2024