Sveitarstjórnarmaður dregur hæfi sveitarstjóra í efa

Ekki er búið að fjármagna að fullu stækkun Lundar, dvalar- og hjúkrunarheimilis á Hellu og því munu verktakar ekki hefja framkvæmdir við stækkunina í næstu viku eins og ráðgert var að loknu útboði.

Miklar deilur eru innan sveitarstjórnar vegna þess að ráðist var í útboðið án samnings við ríkið sem ætlað var að greiddi 85% kostnaðar við bygginguna.

Steindór Tómasson, fulltrúi minnihlutans í sveitarstjórn segir málið til marks um óstjórn og dregur hæfi sveitarstjórans í efa.

„Við leitum allra leiða til að ganga sem hraðast frá þessu og vonumst til að allir leggist á eitt um það,“ segir Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, oddviti meirihlutans í samtali við Sunnlenska.

Aðspurður um ástæður þess að ráðist var í útboð segir hann að sennilega hafi málið vera talið í öðrum farvegi.

Nánar um málið í Sunnlenska fréttablaðinu

Fyrri greinÚlpuránið upplýst
Næsta greinKjartan Ólafs: Stjórnmálamenn skipta máli