Sundmannakláði í Landmannalaugum

Landmannalaugar. Mynd úr safni. © Arild Solberg / Mats Wibe Lund

Umhverfisstofnun hefur fengið tilkynningar um að notendur náttúrulaugarinnar í Landmannalaugum hafi fengið útbrot vegna sundmannakláða.

Um ræðir sundlirfur fuglablóðagða sem valda útbrotum þegar farið er í vatn þar sem lirfurnar eru til staðar. Kláðabólur myndast þegar ofnæmiskerfi líkamans hefur tekist að stöðva lirfurnar.

Sýni menn ekki ofnæmisviðbrögð hefur lirfunni tekist að komast óáreittri inn í líkamann, en þar drepst hún fljótlega. Blóðögðurnar finnast í andfuglum eins og stokkönd og duggönd sem eiga til að dvelja á svæðinu í Landmannalaugum.

Umhverfisstofnun hafði samráð við sóttvarnarlækni og byggist niðurstaða á greiningum frá Tilraunastöðinni á Keldum. Stofnunin í samstarfi við fagaðila vinnur að því að koma í veg fyrir að sundmannakláði berist áfram í náttúrulaugina í Landmannalaugum.

Ekki hefur tekist að koma í veg fyrir það á þessu ári og þurfa því baðgestir að hafa það í huga að enn er möguleiki á að smitast af sundmannakláða.

Fyrri greinMagnús fyrstur til að ljúka hæsta stigi þjálfaranáms
Næsta greinGuðmundur Tyrfingsson ehf 50 ára