Sumarbústaður við Þingvallavatn brann til grunna

Ljósmynd/Brunavarnir Árnessýslu

Sumarbústaður í Miðfellslandi við Þingvallavatn brann til grunna í eldsvoða í kvöld.

Einn maður var í húsinu og náði hann að forða sér út og tilkynna um eldinn.

Útkallið barst kl. 19:18 og var þá mikill eldur í húsinu. Slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Árnessýslu á Selfossi og Laugarvatni voru kallaðir á vettvang.

Húsið var alelda þegar slökkvilið bar að gerði og hafði eldurinn einnig borist í gróður og lögðu slökkviliðsmenn áherslu á að hindra frekari útbreiðslu gróðureldsins og gekk það vel.

Um 20 slökkviliðsmenn voru ennþá við vinnu á vettvangi um kl. 21 í kvöld en þá var slökkvistarfi að mestu lokið.

Húsið var alelda þegar slökkvilið bar að garði. Ljósmynd/Brunavarnir Árnessýslu
Fyrri greinTveir handteknir með tugi kílóa af kannabisefnum
Næsta greinArna Kristín aftur í Selfoss