Ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga samþykkti í síðustu viku harðorða ályktun þar sem nýjum og sívaxandi álögum ríkisvaldsins á atvinnulíf og samfélög á Suðurlandi er mótmælt.
Á þinginu, sem haldið var dagana 29.–30. október á Hvolsvelli, kom skýrt fram að óásættanlegt sé að um helmingur nýrra skatttekna ríkisins eigi að koma úr Suðurkjördæmi, þar sem einungis um 9% landsmanna búa.
Verðmætasköpun á Suðurlandi stefnt í hættu
Suðurland hefur um árabil verið helsti drifkrafturinn í íslenskri ferðaþjónustu og atvinnuuppbyggingu. Í ályktuninni, sem ber yfirskriftina Suðurland er ekki hraðbanki ríkissjóðs, er bent á alvarlega mótsögn í stefnu stjórnvalda.
„Á sama tíma og kallað er eftir auknum fjárfestingum og öflugum byggðum er vegið að rekstrarumhverfi fyrirtækja í landshlutanum með ófyrirsjáanlegum skattahækkunum. Þar má nefna áform um náttúrupassa, hækkun virðisaukaskatts á baðlón og vegtolla, sem öll munu bitna hart á sunnlenskum almenningi og draga úr samkeppnishæfni,“ segir í ályktuninni.
Krafa um samráð og sanngjarna skiptingu
Ársþing SASS krefst þess að staldrað verði við og að þingmenn Suðurkjördæmis beiti sér fyrir frestun þessara áforma þar til óháð og heildstætt mat á áhrifum þeirra á Suðurland liggur fyrir. Samtökin leggja áherslu á að sunnlensk sveitarfélög og atvinnulíf séu ætíð reiðubúin að axla ábyrgð á uppbyggingu innviða, en slíkt verði að byggja á jafnræði, fyrirsjáanleika og raunverulegu samráði við heimafólk. Til að mynda verði að tryggja að tekjur af ferðaþjónustu skili sér til baka í þau samfélög þar sem álagið verður til.
Ársþing SASS krefst þess að ríkisstjórn Íslands:
1. Falli frá áformum um sérstaka gjaldtöku á Þingvöllum, Gullfossi og Geysi og móti í staðinn samræmda og sanngjarna stefnu um gjaldtöku á ferðamannastöðum í eigu ríkisins á landsvísu.
2. Endurskoði fyrirhugaðar skattahækkanir á ferðaþjónustu, sérstaklega hækkun virðisaukaskatts á baðlón, og meti áhrif þeirra á fjárfestingar, atvinnuuppbyggingu og alþjóðlega samkeppnishæfni greinarinnar.
3. Leggi fram heildstætt og opinbert mat á samanlögðum áhrifum allra fyrirhugaðra skattahækkana og gjaldtöku, sundurliðað eftir landshlutum og miðað við íbúafjölda, atvinnugreinar og verðmætasköpun.
4. Tryggi að tekjur ríkisins af ferðaþjónustu skili sér með sanngjörnum hætti til uppbyggingar innviða á þeim svæðum þar sem álagið verður til. Nú þegar er árlegt skattspor ferðaþjónustunnar um 200 milljarðar og greiðir ferðaþjónustan um 50 milljarða í virðisaukaskatt.
5. Leggi fram frumvarp um lagareldi á vorþingi 2027. Mikilvægt er að þessari nýju atvinnugrein verði tryggð skýr lagaumgjörð og fyrirsjáanleiki.
6. Tryggi raunverulegt samráð við sveitarfélögin frá upphafi stefnumótunar og áður en ákvarðanir sem hafa veruleg áhrif á atvinnulíf og samfélög eru teknar.

