Stundum gengur fólk ekki í takt

Geir Sveinsson. Ljósmynd/Hveragerðisbær

Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu að starfslokasamningi við Geir Sveinsson, sem gegnt hefur starfi bæjarstjóra Hveragerðisbæjar undanfarin tvö ár. Geir lætur strax af störfum.

Tillagan var samþykkt með fimm atkvæðum meirihluta Framsóknar og Okkar Hveragerðis en fulltrúar minnihlutans í D-listanum í Hveragerði sátu hjá við afgreiðsluna.

Helga staðgengill bæjarstjóra
Forseta bæjarstjórnar og formanni bæjarráðs hefur verið falið að finna arftaka Geirs en Helga Kristjánsdóttir, skrifstofustjóri Hveragerðisbæjar, verður staðgengill bæjarstjóra þangað til.

„Sem nýr bæjarstjóri hjá nýjum meirihluta í Hveragerði leiddi Geir mörg krefjandi verkefni farsællega. Nú er hins vegar komið að leiðarlokum. Við þökkum honum kærlega fyrir samstarfið og óskum honum alls hins besta í þeim verkefnum sem hann tekur sér næst fyrir hendur,” segir Njörður Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar, í tilkynningu frá Hveragerðisbær.

Stígur sáttur frá borði
Í sömu tilkynningu segir Geir að það hafi verið forréttindi að starfa sem bæjarstjóri í Hveragerði.

„Mér var vel tekið af starfsfólki og íbúum. Það er hins vegar svo að stundum gengur fólk ekki í takt og því er farsælast fyrir alla að ég láti nú af störfum. Um það vorum við meirihlutinn í bæjarstjórn sammála. Ég stíg sáttur frá borði og er stoltur af þeim verkefnum sem við komum til leiða. Ég á eftir að sakna samstarfsfólks míns en óska þeim velfarnaðar í komandi verkefnum. Þá vil ég skila þakklæti fyrir samstarfið til meirihlutans í Okkar Hveragerði og Framsókn með velfarnaðaróskum í komandi verkefnum. Það eru spennandi tímar framundan hjá sveitarfélaginu,” segir Geir.

Í tilkynningu Hveragerðisbæjar segir að Geir fái greidd laun vegna starfsloka í samræmi við ráðningarsamning.

Fyrri greinFimm fengu styrki úr menningarsjóðnum
Næsta greinVörubíll á hliðinni undir Ingólfsfjalli