Steingerður mun fanga nær allt koldíoxíð og brennisteinsvetni frá virkjuninni

Magnús Þór Árnason, Edda Sif Pind Aradóttir, Árni Hrannar Haraldsson og Kolbrún Ragna Ragnarsdóttir. Ljósmynd/Jóhanna Rakel

Fyrsta skóflustungan að hreinsistöðinni Steingerði við Hellisheiðarvirkjun var tekin í gær en með tilkomu hennar tekst að fanga nær allt koldíoxíð og brennisteinsvetni frá virkjuninni.

Þau Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix og Árni Hrannar Haraldsson framkvæmdastjóri Orku Náttúrunnar tóku fyrstu skóflustunguna að stöðinni.

Fyrsta sporlausa jarðvarmavirkjun heims
Skóflustungan markar upphaf framkvæmda vegna Silfurbergsverkefnisins svokallaða sem er samstarfsverkefni Carbfix og Orku náttúrunnar. Markmið þess er að reisa öflugri hreinsistöð sem mun, ásamt núverandi hreinsistöð, fanga nær allt koldíoxíð og brennisteinsvetni úr útblæstri Hellisheiðarvirkjunar og dæla því niður í nálæg basaltberglög til varanlegrar steinrenningar með Carbfix tækninni. Stefnt er að gangsetningu Steingerðar árið 2025 og verður Hellisheiðarvirkjun þar með nær sporlaus, fyrst jarðvarmavirkjana á heimsvísu.

Mikilvægt að vera hluti af lausninni
„Það er Orku náttúrunnar mikilvægt að vera hluti af lausninni gegn hamfarahlýnun jarðar. Það er því mikið ánægjuefni þegar Hellisheiðarvirkjun verður farin að framleiða nánast sporlaust og nýta jarðvarmann á sjálfbæran hátt,“ segir Árni Hrannar.

Núverandi hreinsistöð á Hellisheiði sem var tekin í gagnið árið 2014 fangar um 30% koldíoxíðs og 75% brennisteinsvetni frá virkjuninni. Verkefnið hlaut árið 2021 600 milljóna króna styrk úr Nýsköpunarsjóði Evrópusambandsins.

Getur haft áhrif á heimsvísu
Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix, segir fyrstu skóflustunguna vera afar ánægjulegt skref.

„Það er afar ánægjulegt að framkvæmdir við byggingu Steingerðar séu að hefjast enda höfum við unnið lengi að þessum áfanga með ON. Þetta hjálpar okkur á vegferð okkar við að kynna Carbfix tæknina sem er í senn hagkvæm og umhverfisvæn loftslagslausn sem getur haft áhrif langt út fyrir landsteinana,“ segir Edda Sif.

Fyrri greinSkaftárhreppur fær gefins brú
Næsta greinGjaldtaka hafin í Fjaðrárgljúfri