Stefnt að afhjúpun í ágúst

Þessir heiðursmenn sáu um að koma stöplinum örugglega á sinn stað: Davíð Þór Óskarsson, Páll Jóhannsson, Ólafur Rúnarsson og Bjarki Hafberg Björgvinsson. Ljósmynd/Afrekshugur

Stöpullinn fyrir afsteypu af styttu Nínu Sæmundson, Afrekshugur, hefur verið settur á sinn stað á miðbæjartúninu á Hvolsvelli.

Stefnt er að því að Afrekshugur verði afhjúpaður við hátíðlega athöfn í ágústmánuði. Styttan sjálf, svæðið í kring um hana og aðkoma að henni verður hin glæsilegasta en verkið er afsteypa af verki Nínu Spirit of Achievement, sem hefur staðið fyrir ofan anddyri Waldorf Astoria hótelsins í New York síðan 1931.

Stöpullinn er steyptur af BM Vallá og er gjöf fyrirtækisins til þessa verkefnis. Hann er útfærður og teiknaður af Kristni Mána Svavarssyni hjá Mannvit-verkfræðistofu undir stjórn Tryggva Jónssonar, en Mannvit gaf einnig sína vinnu til verkefnisins.

Fyrri greinAfgreiðslu á framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun frestað
Næsta greinRaunfærnimati beitt í námi fanga