Sr. Kristján endurkjörinn vígslubiskup

Sr. Kristján Björnsson.

Sr. Kristján Björnsson vígslubiskup í Skálholtsumdæmi var endurkjörinn vígslubiskup í rafrænni kosningu sem lauk í hádeginu í dag.

Kristján fékk 425 atkvæði eða 54,98% atkvæða.

Sr. Arna Grétarsdóttir, sóknarprestur í Reynivallaprestakalli fékk 267 atkvæði eða 34,54% og sr. Dagur Fannar Magnússon sóknarprestur í Skálholtsprestakalli fékk 73 atkvæði eða 9,44% atkvæða.

Á kjörskrá voru 1.444 og greiddu 773 atkvæði eða 53,53%. Átta tóku ekki afstöðu.

Fyrri greinHSK/Selfoss sigraði með yfirburðum á MÍ 15-22 ára
Næsta greinÉg vil fara „Upp í sveit“