Spjaldtölvuvæðing í Reykholti

Spjaldtölvurnar komnar í notkun undir styrkri stjórn Gyðu Bjarkar. Ljósmynd/Aðsend

Í síðustu viku fengu nemendur í unglingadeild Bláskógaskóla Reykholti afhentar spjaldtölvur til þess að nota í náminu.

Gyða Björk Björnsdóttir, náttúrufræðikennari og upplýsingatæknimeistari hóf leikinn með unglingunum, en hún hefur um langt skeið byggt sína kennslu á snjalltækjum og tölvum á alnetinu.

Hún kenndi þeim á tækin og möguleikana sem þau bjóða upp á, aðra en leiki og afþreyingu. Í tímanum var farið yfir stafræna borgarvitund og ábyrgð hvers og eins á sínum gjörðum og orðum á netinu.

„Það var gaman að vera vitni að ljómanum í hverju andliti við þetta tækifæri,“ segir Hreinn Þorkelsson, skólastjóri, en skólinn blæs nú til sóknar í spjaldtölvuvæðingu í unglingadeildinni en þessi tæki hafa verið til staðar á miðstigi og yngsta stigi í nokkur ár og nýst vel, sem og í sérkennslu.

Upplýsingatækniteymi skólans leitaði til samfélagsins um styrki til kaupa á spjöldunum. Því var vel tekið og fengust styrkir fyrir nánast öllum tuttugu tækjunum sem keypt voru. Þau fyrirtæki og félagasamtök sem lögðu skólanum lið voru Kvenfélag Biskupstungna, Lionsklúbburinn Geysir, Minningarsjóður Biskupstungna, Hótel Geysir og Friðheimar og vill Hreinn koma á framfæri kærum þökkum til þeirra fyrir þetta eftirtektarverða framlag.

Lifandi dúfur í teiknitíma
Fleira skemmtilegt gerðist í síðustu viku í skólanum. Arite Fricke myndmenntarkennari fékk nágranna sinn, Martein Pál Friðriksson smíðakennara og dúfnabónda í Laugarási til þess að lána nokkrar dúfur sem fyrirmyndir í teiknitíma.

„Það var áhrifamikið að kíkja inn í tímana hjá þeim yngri þar sem nærveran við þessa rósömu, tignarlegu fugla hafði greinilega bætandi áhrif á alla viðstadda. Einbeiting skein úr hverju auga og svipurinn lýsti áhuga og aðdáun um leið. Og það hvissaði í blýöntunum á blöðunum, þar sem nýir fuglar tóku smám saman á sig persónulegar myndir. Unglingavalið fékkst við annað listform – mótaði sína fugla í leirinn,“ segir Hreinn.

Lestrarkennsla lykilþáttur í starfinu
Í Reykholti er líka lögð mikil áhersla á lestrarkennslu. Þær Auður Ólafsdóttir, Áslaug Alda Þórarinsdóttir og Jóna Sigríður Guðmundsdóttir, stuðningsfulltrúar á yngsta stigi, fengu frjálsar hendur til þess að útbúa hugguhorn. Í hornið við bláa vegginn undir stiganum, settu þær góða mottu, púða og teppi. Þetta horn nefna börnin Bláfell. Þar sitja minni námshópar í þeirra umsjá og lesa sér til yndis – á meðan einn í einu æfir sig að lesa upphátt fyrir þær. Þarna finnst börnunum gott að kúra og eiga gæðastundir saman. Talandi um lestur og þjálfun hans má geta þess að Íris Blandon stuðningsfulltrúi og leikkona m.m. tekur ljúflega á móti minni hópum og einstaklingum á bókasafninu, einnig til þess að æfa lesturinn.

Fyrri greinMagnaður sigur skilaði Selfyssingum sæti í 3. umferð
Næsta greinNaumt tap í Njarðvík