Soffía skipuð skólameistari FSu

Soffía Sveinsdóttir.

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Soffíu Sveinsdóttur í embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurlands til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi.

Soffía starfaði um árabil sem efnafræðikennari við Menntaskólann við Hamrahlíð og sem IB stallari við sama skóla á árunum 2008–2022. Hún hefur starfað sem sviðsstjóri vettvangseftirlits hjá Matvælastofnun frá árinu 2022.

Soffía er með grunn- og framhaldsmenntun í efnafræði og diplómu í kennslufræðum frá Háskóla Íslands. Auk þess hefur hún lokið meistaranámi í mannauðsstjórnun og diplómanámi í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands.

Alls sóttu fjórir um um embættið.

Fyrri greinFrábær skráning í hlaupaveisluna í Hveragerði
Næsta grein„Ekki vilji fyrir samtali um að ég myndi vera áfram“