Slys í Reynisfjalli

Séð yfir Vík í Mýrdal í austur af Reynisfjalli. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í dag eftir að erlendur ferðamaður féll í austurhlíð Reynisfjalls í Mýrdal.

Viðbragðsaðilum reyndist erfitt að komast að manninum og var því kallað eftir aðstoð þyrlunnar.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi fór betur en á horfðist þarna og eru meiðsli mannsins ekki talin alvarleg. Hann var fluttur með þyrlunni á sjúkrahús í Reykjavík.

Fyrri greinÞór Llorens kveður eftir fimm ár
Næsta greinÞórsarar á toppnum eftir góðan sigur