Skóflustunga tekin að nýju öryggisfangelsi á Stóra-Hrauni

Bragi Bjarnason, bæjarstjóri í Árborg, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra og Ragna Bjarnadóttir, fangelsismálastjóri við skóflustunguna í dag.

Dómsmálaráðherra, bæjarstjóri Árborgar og fangelsismálastjóri tóku í dag skóflustungu að nýju öryggisfangelsi á Stóra-Hrauni við Eyrarbakka. Undirbúningur fyrir verkið hefur staðið undanfarin þrjú ár.

Stóra-Hraun markar tímamót fyrir íslenskt fangelsiskerfi en þetta er umfangsmesta framkvæmd sem ráðist hefur verið í á sviði fangelsismála hér á landi. Stóra-Hraun er jafnframt fyrsta fangelsið sem er byggt og hannað sem öryggisfangelsi og litið var sérstaklega til reynslu annarra Norðurlanda hvað þetta varðar.

Í nýja fangelsinu verður lögð áhersla á öryggi, aðbúnað og endurhæfingu og að þetta þrennt fari saman. Í minnisblaði sem Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, lagði fyrir ríkisstjórn í síðustu viku kom fram að fangelsiskerfið þyrfti sterka innviði til að takast á við skipulögð afbrot og óæskileg tengsl milli fanga og síðast en ekki síst til að tryggja öryggi starfsfólks og fanga.

„Þetta er söguleg stund. Fangelsið að Stóra-Hrauni verður nútímalegt og uppfyllir allar ströngustu kröfur til að tryggja öryggi starfsfólks og fanga. Með þessari framkvæmd stígum við ákveðið inn í framtíðina, með betri aðstöðu fyrir starfsfólk og fanga og með auknum möguleikum til endurhæfingar,“ sagði Þorbjörg eftir skóflustunguna.

Framkvæmdinni á Stóra-Hrauni er skipt í tvo áfanga. Fyrri áfanginn er fullfjármagnaður og er áætlaður kostnaður um 17,8 milljarðar. Þar verða almenn fangarými fyrir 56 fanga, skólabygging, ein vinnustofa, vöruhús og aðalbygging. Þegar fangelsið er fullbyggt verða þar 128 afplánunarrými.

Að lokinni skóflustungu á Stóra-Hrauni var gestum boðið að þiggja veitingar í veislusal Byggðasafns Árnesinga í varðveisluhúsinu við Búðarstíg.

Fyrri greinHlaðvarpið True Crime Ísland eins árs