Skóflurnar á lofti á Laugarvatni

Stjórnarmenn UTU tóku fyrstu skóflustunguna. Ljósmynd/Iða Marsibil Jónsdóttir

Í morgun var fyrsta skóflustungan tekin að nýju húsnæði Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita bs. við Hverabraut 6 á Laugarvatni.

Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita er byggðasamlag Ásahrepps, Flóahrepps, Bláskógabyggðar, Grímsnes- og Grafningshrepps, Hrunamannahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps og annast það skipulags- og byggingarmál fyrir sveitarfélögin. Fulltrúar sveitarfélaganna í stjórn UTU munduðu skóflurnar í morgun og tóku fyrstu skóflustunguna en síðan taka Fögrusteinar ehf. við jarðvinnunni.

Á dögunum var samið við Selásbyggingar ehf um byggingu hússins, sem á að vera tilbúið þann 1. mars á næsta ári. Tilboð Selásbygginga í verkið nam 183,9 milljónum króna.

Fyrri greinMikil söngmenning í Rangárþingi ytra
Næsta greinStór skellur að Hlíðarenda