Skjálftaskjól með bestu förðunina

Félagsmiðstöðin Skjálftaskjól í Hveragerði tók um síðustu helgi þátt í Stíl, hönnunarkeppni á milli félagsmiðstöðva þar sem keppt er í hárgreiðslu, förðun og fatahönnun.

Hver félagsmiðstöð mátti senda eitt lið til keppninnar og í hverju liði voru tveir til fjórir keppendur, þar af eitt módel. Lið Skjálftaskjóls skipuðu þær, Vilborg Óttarsdóttir, Nína Þöll Birkisdóttir, Sóldís Anna Guðjónsdóttir og Dröfn Einarsdóttir.

Auðbjörg Jónsdóttir kennari var stelpunum stoð og stytta varðandi undirbúning og uppskáru þær verðlaun fyrir bestu förðunina, en það voru 47 lið sem kepptu þannig að sigurinn var sætur.

Fyrri greinGuðrún Inga haustmeistari
Næsta greinOpið hús hjá Fóðurblöndunni