Skellt í lás í Hrunamannahreppi

Á Flúðum. sunnlenska.is/Helga R. Einarsdóttir

Starfsmaður Flúðaskóla í Hrunamannahreppi hefur greinst með COVID-19 og hefur því verið ákveðið að fara í víðtækar aðgerðir í hreppnum til þess að koma í veg fyrir fleiri smit.

Flúðaskóli verður lokaður á morgun, föstudag, sem og á mánudag og einnig íþróttahúsið og tækjasalurinn.

Leikskólinn verður lokaður á morgun föstudag en ef ekki greinast fleiri smit verður leikskólinn opinn á venjulegum tíma eftir helgi.

Þá verður sundlaugin lokuð alla helgina en mun opna aftur á mánudag ef smitum fjölgar ekki.

Hrunamenn eru hvattir til að huga vel að smitvörnum og fara strax í skimun ef fer að bera á einkennum.

Fyrri greinSannfærandi sigur Selfoss
Næsta greinBjarg byggir tíu íbúðir í Hveragerði