Símalaus grunnskóli á Hellu

Grunnskólinn á Hellu. Ljósmynd/RY

Grunnskólinn Hellu verður símalaus frá og með mánudeginum 15. janúar. Það var ákveðið eftir miklar umræður og viðhorfskönnun í skólasamfélaginu.

Skólastjórnendur ákváðu að fela skólaráði að kanna hug foreldra og starfsmanna skólans til málsins en í skólaráði sitja fulltrúar nemenda, foreldra, kennara, annarra starfsmanna og stjórnenda.

Lögð var fyrir viðhorfskönnun um hvaða útfærsla á breyttum skólareglum hugnaðist fólki best og hvernig fólk sæi fyrir sér ef skólinn yrði símalaus.

Í ljósi niðurstaðna könnunarinnar komst skólaráð að þeirri niðurstöðu að notkun snjalltækja í einkaeigu nemenda verði bönnuð í skólanum.

Fyrri greinJökulhlaupið hefur náð hámarki
Næsta greinRennsli í hámarki í Gígjukvísl