Sigurmundur ráðinn markaðs- og kynningarfulltrúi

Sigurmundur Páll Jónsson.

Sigurmundur Páll Jónsson hefur verið ráðinn nýr markaðs- og kynningarfulltrúi Rangárþings eystra.

Hann hefur lokið námi í tæknilegri hönnun frá Tækniskólanum í Kaupmannahöfn ásamt kerfisfræði við Nýja tölvu- og viðskiptaskólann. Hann starfaði hjá Origo síðustu fjögur ár, fyrst sem deildarstjóri yfir sérkerfarekstri og síðar sem ráðgjafi í söluteymi. Áður starfaði Sigurmundur sem þjónustustjóri og við rekstur tölvudeildar hjá TRS ehf. og þar áður bæði hjá Advania og Reykjavíkurborg.

Í gegnum störf sín hefur Sigurmundur stýrt fjölda verkefna, bæði í tengslum við innleiðingu tölvukerfa og einnig í tengslum við markaðsmál s.s. vefsíður, samfélagsmiðla og hafði einnig m.a. umsjón með endurmörkun vörumerkis TRS. Hann hefur mikla reynslu af því að útbúa kynningarefni, auglýsingar og glærukynningar í gegnum stjórnunar- og sölustörf sín.

Simmi, eins og hann er alltaf kallaður er búsettur á Hvolsvelli og þekkir vel svæðið og nærsamfélagið.

Fyrri greinÞjótandi bauð lægst í Dímonarveg
Næsta greinÁrborgarsigur í níu marka leik