Sigurður Emil sigraði annað árið í röð

Sigurður Emil Pálsson, sigurvegari Blítt og létt. Ljósmynd/Aðsend

Sigurður Emil Pálsson sigraði í söngkeppni Nemendafélagsins Mímis, Blítt og létt, sem var haldin í íþróttahúsinu á Laugarvatni fimmtudaginn 29. október síðastliðinn.

Sigurður Emil söng lagið Stimpla mig út eftir Valdimar Guðmundsson. Þess má geta að þetta er annað árið í röð sem Sigurður Emil vinnur Blítt og létt.

Annað sæti skipaði Sara Nadía Gunnarsdóttir með lagið Ég sé þig eftir Björgvin Halldórsson í útsetningu Jóhönnu Guðrúnar. Í þriðja sæti var Bergur Tjörvi Bjarnason með lagið Lukkutroll með Ljótu hálfvitunum.

Skemmtilegasta atriði kvöldsins var í flutningi Bakkabræðra sem er rapptríó skipað af Gísla Guðnasyni, Eiríki Gylfa Janusyni og Guðjóni Inga Guðlaugssyni.

Rapptríóið Bakkabræður slógu í gegn. Ljósmynd/Aðsend

Dómarar kvöldsins voru Pálmi Gunnarsson, Unnur Malín Sigurðardóttir og Elva Rún Pétursdóttir. Þau afhentu sigurvegaranum Hljóðkútinn við dynjandi lófatak þeirra sex hundruð gesta sem voru í húsi.

Undirleikur var í höndum hljómsveitarinnar Stone Stones og kynnar kvöldsins voru þau Hjördís Katla Jónasdóttir og Ingvar Jökull Sölvason en þau luku námi við ML seinasta vor. Hljóð- og ljósastýring var í höndum EB-kerfa og var umgjörð og skipulag kepninnar í heild sinni í höndum nemendafélagsins Mímis að vanda. Yfirbragð keppninnar var í heild sinni hið glæsilegasta.

Sama dag og söngkeppnin fór fram bauð ML flestum 10. bekkingum á Suðurlandi í heimsókn í skólann þar sem þeim gafst tækifæri til að skoða skólann og ljúka svo deginum á Blítt og létt. Kynningardagskráin tókst einkar vel og vill skólinn þakka öllum þeim góðu gestum sem nutu dagsins á Laugarvatni.

Fyrri greinMiklar skemmdir eftir eld í iðnaðarhúsnæði