Sigríður og Viðar fengu Landgræðsluverðlaunin

(F.v.) Árni Bragason landgræðslustjóri, Tryggvi Felixson formaður Landverndar, Sigríður Heiðmundsdóttir og Viðar Steinarsson frá Kaldbak á Rangárvöllum með fjórum barnabörnum og Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra. Ljósmynd/Landgræðslan

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra afhenti Landgræðsluverðlaunin á ársfundi Landgræðslunnar í Gunnarsholti síðastliðinn föstudag.

Verðlaunahafar voru bændurnir á Kaldbaki á Rangárvöllum, þau Sigríður Heiðmundsdóttir og Viðar Steinarsson og Landvernd, landgræðslu- og umhverfisverndarsamtök Íslands.

Sigríður og Viðar á Kaldbaki hlutu verðlaunin fyrir öflugt og árangursríkt uppgræðslu- og landbótastarf á jörð sinni og fleiri svæðum á Rangárvöllum um áratuga skeið.

Landvernd hlaut verðlaunin fyrir öflugt fræðslustarf síðustu árin tengt vernd og endurheimt vistkerfa og sjálfbærri landnýtingu.

Matvælaráðherra afhenti verðlaunahöfum Fjöregg Landgræðslunnar, verðlaunagripi sem unnir eru úr tré í Eik-listiðju á Miðhúsum við Egilsstaði.

Fyrri greinÁratuga samstarf innsiglað áfram
Næsta greinÁlagningarprósentan lækkuð í Hveragerði