Sex sækja um sviðsstjórastöðu

Ráðhús Ölfuss. Ljósmynd/Davíð Þór

Sjö sóttu um stöðu sviðsstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs sveitarfélagsins Ölfuss sem auglýst var á dögunum, en einn aðili dró umsókn sína til baka.

Eftirtaldir sóttu um stöðuna:
Anný Ingimarsdóttir, deildarstjóri
Arna Hrönn Aradóttir, verkefnastjóri
Jóhanna Margrét Hjartardóttir, menningar og frístundafulltrúi
Lína Björg Tryggvadóttir, skrifstofustjóri
Valdimar O. Hermannsson, fv. sveitarstjóri
Þórunn Jóna Hauksdóttir, forstöðumaður

Hagvangur, í samstarfi við bæjarstjórn, sér um ráðningarferlið og gert er ráð fyrir að ráðið verði í stöðuna á næstu dögum.

Fyrri greinÞrír grunaðir um sprengingar á Selfossi
Næsta greinLilja ráðin hjúkrunarforstjóri Lundar