Séra Kristinn hættir í Selfosskirkju

Séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson hefur látið af störfum sem sóknarprestur í Selfosskirkju en í gær var undirritað samkomulag milli Biskups Íslands og sr. Kristins um tilfærslu í starfi.

Í tilkynningu frá Biskupsstofu segir að Sr. Kristinn Ágúst telji að við sameiningu Hraungerðisprestakalls og Selfossprestakalls árið 2009, þegar hann varð sóknarprestur í hinu sameinaða prestakalli, hafi honum ekki verið unnt að sinna sóknarprestsskyldum sínum í prestakallinu. Með þeirri ákvörðun að bjóða séra Kristni Ágústi samning um tilfærslu í starfi er tekið undir það sjónarmið hans.

Sr. Kristinn Ágúst mun verða sérþjónustuprestur Þjóðkirkjunnar og heyra beint undir biskup Íslands. Hann mun gegna sálgæslu og sáttamiðlun og sinna rannsóknum á því sviði, jafnframt því að sinna sérstakri þjónustu hjá Hjálparstarfi kirkjunnar. Þá mun hann taka að sér einstök verkefni fyrir biskup og annast afleysingaþjónustu.

Auglýst verður eftir sóknarpresti og presti, sem munu taka við þjónustu sumarið 2015.

Í vetur mun sr. Axel Árnason Njarðvík þjóna prestakallinu. Viðbótarprestsþjónusta verður einnig tryggð og munu upplýsingar um hana berast síðar.

Fyrri greinSelfossbíó og Rauða húsið
Næsta greinNæstu tvö landsmót í höfuðborginni