Sendir fimm tegundir á markað í vor

Hólmfríður Geirsdóttir garðyrkjubóndi á Kvistum í Reykholti í Biskupstungum hefur náð eftirtektarverðum árangri í berjarækt í gróðurhúsi en um þessar mundir er hún að rækta fimm tegundir sem hún hyggst senda á markaðinn í vor.

Þetta eru jarðarber, hindber, gul hindber, brómber og kirsuber.

„Við byrjuðum berjarækt árið 2010 en fyrstu hindberin sendum við á markað 2011,“ segir Hólmfríður. Hún lauk námi við Garðyrkjuskóla ríkisins árið 1982 og hefur starfað við garðyrkju síðan.

„Við settum garðyrkjustöðina á fót árið 2000 og fluttum hingað í Reykholt. Í byrjun vorum við eingöngu með skógarplöntur. Þessa dagana eru ræktaðar skógarplöntur og stálpaðar sumarbústaðaplöntur ásamt hindberjum og jarðarberjum,“ segir Hólmfríður.

Hún og maður hennar Steinar Jenssen, sem er rafvélavirki, vinna saman við garðyrkjuna en Hólmfríður segir að þetta henti mjög vel því hún sjái um ræktunina og hann allt viðhald og uppbyggingu.

Berin tínd beint ofan í öskjur
Hindberin á Kvistum eru ræktuð í glerhúsi. Uppskeran er frá maí og fram í október. Hólmfríður segir að hindberin séu viðkvæm og fara verði sérstaklega varlega þegar þau eru tínd af plöntunni.

„Við leggjum mikla áherslu á hreinlætið og þeir sem tína þvo sér vel og rækilega og svo notum við handspritt. Berin eru svo tínd beint ofan í öskjur. Jarðarberin eru ræktuð í plastskýlum. Notuð er yrkið Elsanta sem gefur af sér sæt og bragðmikil ber. Innan tveggja klukkustunda eru berin komin inn á kæligeymslu. Garðyrkjustöðin Kvistar hefur verið með í verkefninu Atlantberry frá upphafi.

Ræktendur komu hingað til lands árið 2009 frá Noregi. „Norðmenn eru langt komnir í ræktun hindberja á norðlægum slóðum og þeir hafa miðlað okkur af dýrmætri reynslu sinni og árangurinn er góður, við höfum lent í áföllum en það er bara til að læra af,“ segir Hólmfríður.

Hindber eru ræktuð í 1800 fermetrum og jarðarber í 1000 fermetrum.

Fyrri greinÁrborg vann í bráðabana
Næsta greinBílslys við Jökulheima