Rúmlega áttatíu framúrskarandi fyrirtæki á Suðurlandi

Ljósmynd/Creditinfo

Alls er 81 sunnlenskt fyrirtæki á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki ársins 2026. Viðurkenningarnar voru afhentar í síðustu viku.

Sextán sunnlensk fyrirtæki fengu viðurkenninguna í fyrsta skipti en það eru Landsbyggð fasteignir ehf, GG ehf, Pit-stop ehf, Hólaborg ehf, L&G húsasmiðir ehf og Búvélar ehf á Selfossi, Hverafell ehf og Norbygg ehf í Hveragerði, Árfoss ehf í Flóahreppi, Hvataferðir ehf í Hrunamannahreppi, Efstidalur 2 ehf og Gufa – Laugarvatn Fontana ehf í Bláskógabyggð, Bjólfell ehf, Gerandi ehf og Móeiðarhvoll 2 ehf í Rangárþingi eystra og BC Pizza í Vík í Mýrdal.

Í 17 ár hefur Creditinfo unnið greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitt Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangurinn. Fossvélar ehf á Selfossi er eina sunnlenska fyrirtækið sem hefur fengið viðurkenningunna frá upphafi en meðal annarra stórra fyrirtækja á Suðurlandi sem fengu viðurkenninguna í ár eru Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf, Hótel Geysir ehf, Landstólpi ehf, Friðheimar ehf, Vigri ehf, Hallgerður ehf, Gamla laugin ehf og Jáverk ehf.

Fyrri greinÖruggt hjá Þórskonum í Smáranum