Raunfærnimati beitt í námi fanga

Jón Sigursteinn Gunnarsson, trésmíðakennari í FSu og Jón Ingi Jónsson, verkstjóri á Litla-Hrauni, á trésmíðaverkstæðinu á Litla-Hrauni. Ljósmynd/FSu

Í fangelsinu á Litla-Hrauni hefur verið kennd trésmíði í tvö ár og alltaf fullskipað í greinina. Fjölbrautaskóli Suðurlands rekur þar sérstaka deild fyrir fanga.

Aðstæða til náms er prýðileg á Litla-Hrauni þar sem kennslan fer fram á trésmíðaverkstæðinu undir stjórn Jóns Inga Jónssonar verkstjóra. Jón Sigursteinn Gunnarsson, trésmíðakennari í FSu, kemur einu sinni í viku og kennir nemendum.

Á Litla-Hrauni eru einstaklingar á öllum aldri og jafnvel með margra ára reynslu í starfsgrein en ekki formlega menntun. Undir handleiðslu Klöru Guðbrandsdóttur náms- og starfsráðgjafa FSu í fangelsum geta einstaklingar farið í raunfærnimat uppfylli þeir skilyrði. Þar er metin sú þekking og færni sem einstaklingur hefur öðlast á vinnumarkaði, sem mögulega getur stytt nám og verið jákvæð hvatning til að ljúka námi. Til að komast í raunfærnimat þarf viðkomandi að hafa náð 23 ára aldri og vera með þriggja ára staðfesta starfsreynslu í greininni.

Í frétt á heimasíðu FSu nefnir Klara í þessu sambandi nemanda sem lauk nýlega raunfærnimati í trésmíði hjá Iðunni fræðslusetri. „Við undirbúning fékk nemandinn góða handleiðslu hjá Jóni verkstjóra en mikil og góð samvinna er á milli skólans og starfsfólks fangelsisins. Nemandinn fékk metnar 80 af 124 einingum faggreina húsasmíðinnar og öllum nema tveimur verkþáttum af 90 eininga verknámi. Ekki er hægt að segja annað en að þetta sé afburðarárangur og nú á nemandinn lítið eftir til að geta farið í sveinspróf í húsasmíði og getur vonandi klárað það að mestu hjá okkur í FSu,” segir Klara.

Fyrri greinStefnt að afhjúpun í ágúst
Næsta greinAron Fannar skrifar undir þriggja ára samning