Rafmagnslaust á Selfossi

Selfoss. sunnlenska.is/Egill Bjarnason

Rafmagn fór af stórum hluta Selfossbæjar á tólfta tímanum í morgun eftir að vinnuvél gróf niður í háspennustreng sem olli útslætti.

Samkvæmt upplýsingum frá HS veitum var rafmagnslaust í rúmar tíu mínútur og á rafmagn nú að vera komið á allan bæinn aftur.

Fyrri greinHelga Fjóla bætti héraðsmet í stangarstökki
Næsta greinRiðuhöftum aflétt í Landnámshólfi