Pálína aðstoðar matvælaráðherra

Gnúpverjinn Pálína Axelsdóttir Njarðvík hefur verið ráðin aðstoðarmaður Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra.

Pálína er fædd árið 1991 og ólst upp í Gnúpverjahreppi. Hún útskrifaðist sem stúdent frá Kvennaskólanum árið 2011, er menntuð í sálfræði og útskifaðist með BSc gráðu frá Háskóla Íslands árið 2016 og MSc í félagssálfræði árið 2019. Á árunum frá 2020 til 2022 starfaði hún sem sérkennslustýra og vann sem ráðgjafi hjá Attentus frá 2023-2024.

Pálína hefur hefur unnið sjálfstætt við efnissköpun og miðlun á samfélagsmiðlum frá árinu 2015 en hún hefur unnið sveitastörf frá unga aldri og deilt þeirri reynslu sinni á Instagram þar sem hún hefur eignast fjölda fylgjenda síðan 2015.

Fyrri greinGosmóða yfir Suðurlandi
Næsta greinLeikskólinn Heklukot 50 ára