Óvissustig í gildi en opnað inn að jökli

Mýrdalsjökull. sunnlenska.is/Sigurður Hjálmarsson

Eftir samráð almannavarna og vísindamanna hefur lögreglustjórinn á Suðurlandi ákveðið að aflétta lokun á veginum inn að Kötlujökli.

Í fréttatilkynningu Veðurstofu Íslands segir að virknin í Kötluöskju teljist nú til eðlilegrar bakgrunnsvirkni eldstöðvarinnar. Skjálftahrina hófst þar í gærmorgun með rúmlega 40 skjálftum og þar af voru þrír yfir 4 af stærð.

Óvissustig er enn í gildi og því full ástæða til að sýna varúð á svæðinu.

Fyrri grein„Gerðu eitthvað sem þér finnst gaman, þá ertu góður í því“
Næsta greinBúsetufrelsi í Grímsnes- og Grafningshreppi