Óvenju góð netaveiði

Netaveiðar um sumarbil hafa ekki þótt gefa mikla raun og helst hefur þá verið um skötuselsveiðar. Máni II ÁR sem að Ragnar Emilson er skipstjóri á átti þó ansi góðan júní mánuð þar sem að aflinn hjá bátnum fór í tæp 50 tonn.

Í júlí hefur líka gengið vel hjá Mána II og var hann kominn með um 6 tonn í tveimur róðrum þegar hann fór út með fjórar 10 neta trossur og lagði netin á Selvogsbankanum.

Þar hitti Ragnar ansi vel í hann, því þessar fáu trossur voru svo til fullar af ufsa og löngu. Þegar upp var staðið þá voru um 13 tonn í bátnum sem fengust á þessar fjórar trossur. Það gerir um 3,3 tonn í trossu sem er ansi gott.

Veiði sem þessi er kannski hvað algengust á vetrarvertíðum en Ragnar sagði í samtali við Aflafréttir að honum þætti þetta óvenjulega góð veiði miðað við hversu langt væri komið fram á sumarið.

Fyrri greinEldur kviknaði í örbylgjuofni
Næsta greinHættulegar snjóhengjur í Veiðivötnum