Síðdegis í dag voru björgunarsveitir á Suðurlandi aftur boðaðar út vegna ferðamanns sem var í vandræðum á hálendinu. Björgunarsveitafólkið var nýkomið úr útkalli á Fimmvörðuhálsi síðan í nótt, þegar útkallið barst.
Að þessu sinni var um að ræða göngumann sem var örmagna og villtur á Syðra-Fjallabaki á milli Hvanngils og Emstra.
Mikil þoka var á svæðinu og maðurinn sá að einhverju leiti til fjalla en vissi ekki hvar hann var, fyrir utan það að vera á slóða. Hann var í farsímasambandi og átti þannig samskipti við björgunarsveitafólk sem var lagt af stað til hans.
Björgunarsveitafólkið vissi af aðila á vegum Ferðafélags Íslands á svæðinu og bað hann að keyra slóðann á því svæði þar sem talið var að maðurinn væri út frá farsímasendi sem sími hans tengdist.
Hann fann manninn stuttu seinna og keyrði með hann á móti björgunarsveitafólkinu sem flutti manninn svo í Emstruskála, gaf honum heitt að borða og drekka.
Hálendisvakt hefst á föstudaginn
Á föstudaginn hefst hálendisvakt Slysavarnafélagsins Landsbjargar 13. árið í röð. Hátt í 200 manns standa vaktina á þremur stöðum á hálendinu fram í ágúst. Þannig er hægt að stytta viðbragð og sinna forvörnum með því að leiðbeina og aðstoða ferðamenn.
Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að það sé nokkuð ljóst að miðað við verkefnin hjá björgunarsveitum í dag sé full ástæða fyrir Slysavarnafélagið Landsbjörgu að halda úti því verkefni.
Á hálendinu er enn töluverður snjór bæði á vegum og gönguleiðum og því ekki kjör aðstæður til ferðalaga. Það er mikilvægt fyrir göngufólk að hafa það í huga við sína áætlanagerð að gönguferðir í þannig aðstæðum geta verið erfiðari en ella. Einnig er alltaf mikilvægt að huga að veðurspám og kynna sér aðstæður, hvort sem þar er sumar að vetur.