
Orka náttúrunnar og Thor landeldi hafa undirritað raforkusamning sem styður við áframhaldandi uppbyggingu landeldisstöðvar félagsins í Ölfusi. Samningurinn felur í sér aukningu á samningsbundinni raforku úr 5 MW í 10 MW, auk viljayfirlýsingar um frekari raforku til framtíðar.
Thor landeldi vinnur að uppbyggingu landeldisstöðvar fyrir lax vestan við Þorlákshöfn. Aðgangur að ferskvatni, jarðsjó og raforku skapar hagstæð skilyrði fyrir landeldi og sjálfbæra matvælaframleiðslu. Félagið rekur nú þegar seiðastöð og stefnt er að því að fyrsti áfangi áframeldis, með 5.000 tonna ársframleiðslugetu, verði tekinn í notkun í vetur.
Thor landeldi hefur leyfi fyrir 20.000 tonna ársframleiðslu og vinnur að því að auka framleiðsluheimildir sínar í allt að 40.000 tonn á ári í áföngum.
„Við erum að byggja upp nýja útflutningsgrein á grunni íslenskra auðlinda og samstarfið við ON er mikilvægur hluti af þeirri uppbyggingu. Með aukningu á raforkusamningi úr 5 í 10 MW, ásamt viljayfirlýsingu um frekari raforku, getum við haldið áfram áfangaskiptri uppbyggingu af fullum krafti í samræmi við leyfi félagsins,“ segir Steinþór Pálsson, forstjóri Thor landeldis.
Áreiðanleg raforka er lykilforsenda uppbyggingar
Raforka er ein af grunnforsendum landeldis og tryggur aðgangur að henni skiptir miklu fyrir uppbyggingu greinarinnar. Með samningnum styður ON við atvinnustarfsemi sem skapar störf, eykur útflutningstekjur og styrkir atvinnulíf í nærsamfélaginu.
„Aðgangur að áreiðanlegri raforku er lykilforsenda uppbyggingar í landeldi og ánægjulegt að styðja við áframhaldandi vöxt Thor landeldis og atvinnustarfsemi í Ölfusi með þessum samningi. Verkefnið fellur vel að áherslum ON um að skapa verðmæti úr raforkunni með því að styðja við atvinnuuppbyggingu, útflutning og matvælaframleiðslu hér á landi. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við Thor á komandi árum,“ segir Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar.
Orka náttúrunnar er stærsta jarðvarmafyrirtæki landsins og framleiðir raforku og heitt vatn. Félagið rekur Hellisheiðarvirkjun, Nesjavallavirkjun og Andakílsárvirkjun, með samtals 431 MW uppsett afl.
