Orka náttúrunnar og GeoSalmo gera samning um raforkukaup

Frá undirritun samningsins í Hellisheiðarvirkjun Orku náttúrunnar í dag. Ljósmynd/Einar Örn

Orka náttúrunnar (ON) og landeldisfyrirtækið GeoSalmo hafa undirritað raforkusamning um kaup á allt að 28 MW af raforku sem nýtt verður til landeldisstöðvar við Þorlákshöfn. Í tilkynningu frá fyrirtækjunum segir að samningurinn falli vel að þeirri sterku umhverfisvitund sem bæði fyrirtækin hafa að leiðarljósi.

„Það er grundvallaratriði í undirbúningi okkar að tryggja orku og felast í því mikil verðmæti fyrir GeoSalmo. ON er traustur og öflugur samstarfsaðili og verulega ánægjulegt að orkan í verkefnið komi úr sama sveitarfélagi,“ segir Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri GeoSalmo.

„Umhverfisvæn matvælaframleiðsla er góð nýting á íslenskri orku, bæði efnahagslega og sem liður í að minnka kolefnisspor matvælaframleiðslu á heimsvísu. Það er mikill styrkur fyrir verkefnið að ON hafi valið okkur sem framtíðar viðskiptavin og væntum við mikils af samstarfinu. Við erum bjartsýn á framtíðina og leggjum áherslu á að starfsemi fyrirtækisins verði í góðri sátt við umhverfi og samfélag auk þess að framleiða hágæðavöru fyrir okkar viðskiptavini,“ bætir Jens við.

Fyrsta verkefni GeoSalmo er eldisstöð með framleiðslugetu allt að 24 þúsund tonn á ári en fyrsti áfangi þess nemur um 7.500 tonnum. Undirbúningur framkvæmda er langt kominn og hefur Skipulagsstofnun þegar gefið út álit sem staðfestir umhverfismatsskýrslu GeoSalmo.

Áhersla á sjálfbærni og sátt við náttúru og samfélag
ON og GeoSalmo leggja bæði áherslu á sjálfbærni og að starfsemin sé í góðri sátt við náttúru og samfélag. ON stefnir að því að starfsemin við orkuvinnslu frá Hellisheiðarvirkjun í Ölfusi verði kolefnishlutlaus árið 2025.

Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, segir að hlutverk fyrirtækisins sé að framleiða og selja rafmagn á ábyrgan og umhverfisvænan hátt með sjálfbærni að leiðarljósi.

„Við höfum flýtt fyrir tækniþróun á sviði kolefnisförgunar sem leiðir til minna vistspors okkar starfsemi og erum frumkvöðlar í orkuskiptunum á Íslandi. Áform GeoSalmo falla vel að framtíðarsýn okkar um verðmæta viðskiptavini sem hafa skarpa sýn á umhverfið og nauðsynlega hringrás í hagkerfinu með hliðsjón af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Við erum afar stolt yfir því að eiga viðskiptavini sem deila þessum gildum okkar og erum því ákaflega ánægð með að GeoSalmo sé nú okkar viðskiptavinur,“ segir Árni Hrannar.

Fyrri greinArnar ráðinn forstjóri Líflands
Næsta greinJökulhlaup undan Entujökli