Opnir fundir um skóg- og skjólbeltarækt

Ljósmynd/Hreinn Óskarsson

Félag skógareigenda á Suðurlandi (FsS), í samstarfi við Skógræktina, boða til fjögurra opinna funda um skóg- og skjólbeltarækt í næstu viku.

Fundirnir verða 4. október kl. 17 á Götum í Mýrdal, 5. október kl. 20 á Hótel Klaustri, 6. október kl. 17 í Goðalandi Fljótshlíð og 7. október kl. 20 á Hótel Selfossi.

Fundirnir eru haldnir m.a. til að skerpa umræðuna á stöðu nytjaskógræktar og skjólbeltaræktar á Suðurlandi, m.a. með tilliti til bindingar á kolefni í skógum og möguleikum bænda á að kolefnisjafna bú sín með skógrækt og jafnvel á sölu á umfram kolefnisbindingu skóga á einstaka jörðum. Einnig verður rætt um nýtt félagskerfi bænda, stöðu og framtíðarsýn nytjaskógræktar/skjólbeltaræktar, fræðslumál o.fl.

Dagskrá fundanna er:

  1. Starf skógarbænda á Suðurlandi.
  • Hlutverk FsS – Björn Bjarndal
  • Að vera skógarbóndi – Ísólfur Gylfi Pálmason
  • Að taka þátt í leshópum um skógrækt og skjólbeltarækt. Skráning hefst í þriggja ára leshóparöð.
  • Nýtt félagskerfi skógarbænda – Guðrún Birna Brynjarsdóttir
  • Kolefnisbrúin – Hlynur Gauti Sigurðsson
  1. Horft til framtíðar í nytja- og skjólbeltarækt.

Sérfræðingar Skógræktarinnar á Suðurlandi ræða um stöðu nýtjaskógræktar og skjólbeltaræktar á Suðurlandi, m.a. með tilliti til bindingar kolefnis í skógum og önnur verkefni Skógræktarinnar.

  1. Almennar umræður.

Starfið framundan:

Hvert á hlutverk skógarbænda að vera í grisjun og umhirðu skóga, ásamt úrvinnslu skógarafurða.

Hvers konar verktakavinnu vantar í skjólbelta- og skógrækt? Hver, hvar, hvernig?

Fræðsla fyrir skjólbelta- og skógarbændur.

Fundirnir eru öllum opnir. Horfum til framtíðar.

 

Fyrri greinNý listasýning í Gallerý Listaseli
Næsta greinUglur frumsýnd á RIFF 2021