
Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til viðurkenninga Félags kvenna í atvinnulífinu 2027. Atvinnulífið og almenningur eru hvött til að tilnefna konur sem hafa skarað fram úr, sýnt frumkvæði eða verið öðrum fyrirmynd. Tilnefna má í einum eða fleiri flokkum til og með 22. nóvember 2026.
Árlega heiðrar Félag kvenna í atvinnulífinu FKA konur fyrir framlag þeirra til atvinnulífs og samfélags með FKA viðurkenningunni, Hvatningarviðurkenningu FKA og Þakkarviðurkenningu FKA.
Hér er hægt að senda inn tilnefningar
Síðasta Viðurkenningarhátíð FKA fór fram í janúar 2026. Þá voru Eva María Þórarinsdóttir Lange, stofnandi og framkvæmdastjóri Pink Iceland, Erna Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Ljóssins, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri, utanríkisráðherra og forstjóri Lýðræðis- og mannréttindastofnunar ÖSE, heiðraðar.
