Opið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóðinn

Ljósmynd/Þórir N. Kjartansson

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í vorúthlutun Uppbyggingarsjóð Suðurlands 2024. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar og menningar á Suðurlandi.

Í flokki atvinnuþróunar og nýsköpunar eru það atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni sem eiga kost á stuðningi ásamt nýsköpunarverkefnum sem efla fjölbreytileika atvinnulífs. Í flokki menningar er markmið að verkefni efli menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi.

Uppbyggingarsjóður Suðurlands byggir á Sóknaráætlun Suðurlands 2020-2024. Sjóðurinn er samkeppnissjóður sem þýðir að vel mótuð verkefni, skýrar og góðar umsóknir, eru líklegri til að hljóta styrki.

Umsóknir fyrir verkefni í sjóðinn geta uppfyllt eina eða fleiri áherslur sjóðsins en skilyrði er að öll verkefni uppfylli að lágmarki markmið sjóðsins í þeim flokki sem það tilheyrir, menningu eða atvinnu- og nýsköpun. Byggðaþróunarfulltrúar SASS eru staðsettir víða á Suðurlandi og aðstoða við mótun verkefna og veita ráðgjöf.

Allar umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnum umsóknarvef sjóðsins og þurfa umsækjendur að hafa lögheimili á Suðurlandi. Kynningarfundur um sjóðinn verður haldinn á Teams  13. febrúar kl. 12:15 verður hann auglýstur nánar síðar. Umsóknir skulu berast fyrir kl. 16:00 þann 5. mars 2024.

Nánar um sjóðinn hér.

Fyrri greinAllt liðið komst á blað
Næsta greinAndri Már bætir metum í safnið