Fimm ár eru liðin frá því að nýr miðbær opnaði á Selfossi og nú er komið að því að fagna. Miðbær Selfoss býður til afmælisveislu dagana 5.–7. nóvember og er dagskráin þannig að allir finna sér eitthvað að gera að skoða.
Karlakór Selfoss syngur á kósýkvöldi í kvöld klukkan 19:00, fimmtudag, og á laugardag fer Valdi Braga með gesti í sögugöngu þar sem sagðar verða sögur af húsunum og fólkinu á bak við þau. Gengið er frá mathöllinni kl. 13:00, 14:00 og 15:30.
Það verður svo fimm ára Selfyssingur, jafngamall miðbænum, sem sker fimm metra afmælistertuna á Risinu kl. 15:05 á laugardag. Öllum er boðið í kaffi og kökusneið. Hringekja verður fyrir yngstu kynslóðina alla dagana og verslanir og veitingastaðir bjóða afmælistilboð alla helgina.
Nánari upplýsingar um dagskrá er á midbaerselfoss.is.

