Ölfusið eitt orkuríkasta svæði landsins

Þorlákshöfn. Ljósmynd/Aðsend

Fyrr í dag stofnaði Sveitarfélagið Ölfus Orkufélagið Títan ehf, sem ætlað er að fara fyrir orkurannsóknum og orkuvinnslu fyrir hönd Sveitarfélagsins Ölfus. Með þessu hyggst Sveitarfélagið Ölfus bregðast við yfirvofandi orkuskorti á svæðinu.

Í tilkynningu segir að félagið sé rekstrarfélag og er tilgangur þess orkurannsóknir, orkuvinnsla og rekstur hitaveitu í þágu Sveitarfélagsins Ölfus og annarra sveitarfélaga og hagaðila á áhrifasvæði þess og rekstur tengdra mannvirkja.

Í stjórn félagsins eru Grétar Ingi Erlendsson, formaður stjórnar, Sandra Dís Hafþórsdóttir og Kristín Magnúsdóttir. Í varastjórn eru Hrönn Guðmundsdóttir og Gestur Þór Kristjánsson. Jafnframt var Elliði Vignisson ráðinn framkvæmdastjóri með prókúru.

Fjölmargir nýtingarkostir í Ölfusinu
Elliði segir að aðgengi að orku sé að verða ein helsta ógn verðmætasköpunar á Íslandi og mikilvægt að allir leggist á eitt til að hreyfa við málum.

„Það verður ekki við það búið að hér takmarkist verðmætasköpun af því að ekki sé nægt aðgengi að orku. Sveitarfélagið Ölfus er eitt orkuríkasta svæði á Íslandi með fjölmarga kosti til nýtingar. Við höfum sótt fast fram á forsendum framleiðslu á umhverfisvænum matvælum og fleira og berum því ábyrgð á því að innviðir, eins og aðgengi að orku verði tryggðir. Hlutverk félagsins verður fyrst og fremst að koma fram í þessum málum fyrir hönd Sveitarfélagsins Ölfuss og þá eftir atvikum í samstarfi við orkufyrirtæki með aðgengi að þekkingu, tækjum og fjármagni. Þannig er það ekki séð sem hlutverk félagsins að standa í áhætturekstri heldur að leita samstarfs sem tryggir íbúum verðmætasköpun og velferð,“ segir Elliði.

Hver einasti dropi nýttur á höfuðborgarsvæðinu
Grétar Ingi Erlendsson, stjórnarformaður, segir að með stofnun félagsins hyggist Ölfusingar beita sér enn fastar en áður fyrir nýtingu orkukosta innan Sveitarfélagsins Ölfus í þeim tilgangi að tryggja íbúum og fyrirtækjum aðgengi að orku.

„Í þessu samhengi horfum við meðal annars til nýtingar á Ölkelduhálsi með möguleika á skáborun undir Reykjadal, Grændal og Gufudal, þá er þekkt aðgengi að orku í Ölfusdal, við Hlíðardalsskóla og víðar innan sveitarfélagsins. Við höfum á seinustu árum verið of miklir áhorfendur í orkumálum og til að mynda séð sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu byggja upp stærsta jarðorkuver í heimi upp hér í Ölfusinu. Svo magnað sem það er þá nýtist þessi mikla orka sem þar er unnin ekki fyrir fyrirtæki hér á svæðinu heldur er hver einasti dropi nýttur á höfuðborgarsvæðinu auk smáræðis innan lóðar þeirra á Hellisheiði. Þessu ætlum við að breyta með því að stíga sjálf fram í þessum málum,“ segir Grétar Ingi.

Fyrri greinVeglokunum aflétt og rennsli fer minnkandi
Næsta greinLeystur úr gæsluvarðhaldi og dæmdur í farbann