OK heldur Tæknidag á Selfossi

OK heldur Tæknidag í Tryggvaskála á Selfossi fimmtudaginn 12. nóvember undir yfirskriftinni „OK á Suðurlandi – Tæknidagurinn 2026“.

Viðburðurinn er ætlaður fyrirtækjum og stofnunum á Suðurlandi og verður farið yfir ýmis mál sem eru ofarlega á baugi í tækninni um þessar mundir. Sérfræðingar OK fjalla meðal annars um gervigreind í fartölvum, hljóð- og myndlausnir, netbúnað, Microsoft 365 og öryggi.

Meðal erinda á dagskrá eru „Gervigreind í fartölvum – hvað er raunverulega hægt að gera?“, „Er netbúnaður þinn mikilvægasti búnaður?“ og „Microsoft 365 á tímum gervigreindar – hvað þarf að vera í lagi?“. Arnar S. Gunnarsson, öryggisstjóri OK, fjallar jafnframt um hvers vegna öryggi er undirstaða í rekstri fyrirtækja og stofnana.

Gunnar Zoëga, forstjóri OK, verður fundarstjóri.

Húsið opnar kl. 16:30 og dagskrá hefst kl. 17:00. Að erindum loknum tekur við matur, drykkur og spjall í Tryggvaskála. Skráning er nauðsynleg og sætafjöldi takmarkaður.

Nánari upplýsingar og skráning

Fyrri greinFlottur árangur hjá Berserkjum á Reykjavík Open