Nýr Skagfjörðsskáli var fluttur í sex einingum frá Selfossi inn í Langadal í Þórsmörk í dag. Flutningarnir gengu vel fyrir sig en Selfyssingar eru í lykilhlutverki við byggingu nýja skálans.
Skagfjörðsskáli var rifinn í sumar en hann hefur staðið í hjarta Þórsmerkur allt frá árinu 1954. Nýi skálinn er byggður á grunni þess eldri, með sama útliti en innra skipulag hússins uppfært með betra eldhúsi, stærri matsal, meira útsýni og salerni í skálanum.
SG-hús á Selfossi sjá um byggingu nýja skálans og voru húseiningarnar smíðaðar á Selfossi. Þær verða settar saman nú í framhaldinu og húsinu lokað en vetrarmánuðirnir verða nýttir til vinnu innandyra.
Kríutangi á Selfossi sá um smíði sökkuls undir húsið og Þórir Már Ingvason hjá Ingvasonum sá um flutninginn ásamt JÁ-verk sem sá einnig um að hífa.
Stefnt er að því að nýi skálinn verði vígður þann 17. júní 2027, á 100 ára afmælisári Ferðafélags Íslands.
Hér fyrir neðan má sjá myndband af því þegar einn húshlutanna er fluttur yfir Krossá við Langadal.


