Fjarskiptasæstrengurinn AUÐUR, sem Korda undirbýr milli Íslands og Skotlands, mun koma á land í Meðallandi, sunnan Kirkjubæjarklausturs. Í Skotlandi verður lendingarstaðurinn í Irvine-flóa við Clydefjörð, vestan Glasgow. Stefnt er að því að strengurinn verði tekinn í notkun um áramótin 2029–2030.
Korda mun jafnframt byggja upp nýjan afhendingarstað fyrir fjarskiptaþjónustu í Glasgow. Þaðan verður boðið upp á fjölbreyttar tengileiðir áfram til London, Norðurlanda, meginlands Evrópu og Írlands.
Sjávarbotnsrannsóknir eru áætlaðar sumarið 2027. Útboð vegna ljósleiðaraleiða á landi frá lendingarstaðnum á Íslandi að afhendingarstöðum þjónustu stendur nú yfir og stefnt er að því að framkvæmdir hefjist sumarið 2027.
Korda hefur valið Pioneer Consulting sem aðalráðgjafa verkefnisins. Ráðgjafafyrirtækið mun styðja Korda við verkefnastýringu og hafa umsjón með útboðum, yfirferð tilboða og vali á verktökum og birgjum vegna meðal annars sjávarbotnsrannsókna, framleiðslu og lagningar strengsins. Pioneer Consulting er alþjóðlegt ráðgjafar- og verkfræðifyrirtæki sem hefur frá 1998 sérhæft sig í sæstrengsverkefnum, frá frumathugunum og hönnun til framkvæmda og verkefnastýringar.
Með AUÐI mun Korda styrkja tengingar Íslands við alþjóðleg fjarskiptanet og fjölga leiðum fyrir gagnaflutninga milli Íslands og Evrópu.


