Nýju brýrnar yfir Núpsvötn og Hverfisfljót formlega opnaðar

Heiðbjört Harpa Björnsdóttir, skæravörður, afhendir Bergþóru Þorkelsdóttur og Sigurði Inga Jóhannssyni skærin til að klippa á borðann á Núpsvatnabrúnni. Ljósmynd/Vegagerðin

Einbreiðum brúm á Þjóðvegi 1 hefur nú fækkað um tvær og eru þær því orðnar 29 talsins með tilkomu nýrra tvíbreiðra brúa yfir annars vegar Núpsvötn og hins vegar Hverfisfljót. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, opnuðu formlega brýrnar tvær í dag með því að klippa á borða við hátíðlega athöfn á brúnni yfir Núpsvötn.

Umferðaröryggi eykst til muna með nýju, tvíbreiðu brúnum og þær stuðla að greiðari samgöngum. Áður var brúin yfir Núpsvötn sú brú þar sem flest slys hafa orðið við einbreiða brú á Hringveginum. Á árunum 2000 til 2022 urðu fjögur slys á brúnni yfir Hverfisfljót. Á sama tímabili voru slysin á brúnni yfir Núpsvötn 20, þar af eitt banaslys árið 2018 þegar bíll steyptist yfir vegrið brúarinnar með þeim afleiðingum að þrír létu lífið.

Brúarsmíðin var boðin út sumarið 2021 og verksamningur við ÞG-verk ehf. undirritaður 6. ágúst 2021. Framkvæmdir hófust í september sama ár, en áður hafði brúarvinnuflokkur Vegagerðarinnar lokið niðurrekstri staura vegna brúarinnar yfir Núpsvötn.

Nýja tvíbreiða brúin yfir Hverfisfljót er 74 metra löng og er staðsett um 20 metrum neðan við gömlu brúna sem reist var árið 1968 og var 60 metra löng. Einnig var innifalið í verkinu vegtenging og endurbygging á um 2 kílómetra kafla auk gerð nýs áningarstaður í stað fyrri áningarstaðar sem lenti undir vegtengingu brúarinnar. Brúin yfir Hverfisfljót var opnuð fyrir umferð í nóvember 2022.

Nýja tvíbreiða brúin yfir Núpsvötn er 138 metra löng og kemur í stað brúarinnar sem reist var árið 1973 og er 420 metra löng. Í verkinu var einnig innifalin gerð vegtenginga og endurbygging núverandi vegar á um 2 kílómetra kafla auk nýs áningarstaður vestan nýju brúarinnar. Brúin yfir Núpsvötn var opnuð fyrir umferð fyrr í þessum mánuði. Lítilsháttar frágangur er eftir sem snýr að landmótun og frágangi aðstöðusvæðis.

Nýja og gamla brúin yfir Núpsvötn. Ljósmynd/Vegagerðin
Fyrri greinDamian og Tomek aftur í Hamar
Næsta greinMáni Snær afgreiddi gömlu félagana