Niðurskurður hefur víðtæk áhrif á ML og FSu

Jóna Katrín Hilmarsdóttir, skólameistari ML og Soffía Sveinsdóttir, skólameistari FSu. sunnlenska.is/Jóhanna Petersen

Í nýrri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar er ráðgert að fjárframlög til framhaldsskóla dragist saman 7,1% á næstu fimm árum. Skólastigið hefur þegar verið fjársvelt í langan tíma og framhaldsskólar margir hverjir komnir inn að beini í bæði niðurskurði og aðhaldi. Fjölbrautaskóli Suðurlands og Menntaskólinn að Laugarvatni hafa báðir fundið fyrir niðurskurðinum.

Uppsagnir, skert starfshlutföll og færri endurráðnningar
Sunnlenska.is hafði samband við Soffíu Sveinsdóttur, skólameistara FSu og Jónu Katrínu Hilmarsdóttur, skólameistara ML, og ræddi við þær hvernig niðurskurðurinn hefur komið við þeirra skóla.

„Við höfum þurft að segja upp starfsfólki, starfshlutföll hafa verið minnkuð og staða forstöðumanns bókasafns ML verið lögð niður. Samningi við sálfræðing um þjónustu við nemendur var sagt upp, ásamt fleiri aðgerðum,“ segir Jóna Katrín.

Soffía tekur í sama streng og Jóna Katrín. „Við erum með uppsafnaðan halla sem okkur er gert að greiða niður næstu tvö árin. Við settum niður á blað alls konar hagræðingartillögur, bæði smáar og stórar. Hagræddum í ræstingu, höfum ekki ráðið í allar stöður þegar starfsfólk hefur hætt, fækkuðum ýmsum verkefnum og fleira.“

Eftirsjá af sálfræðiþjónustunni
Jóna Katrín segir að ekki hafi verið um að ræða beinan niðurskurð á námsframboði í ML. „Allt kapp er lagt á í aðgerðum að hagræðing bitni sem allra minnst á þjónustu við nemendur. Erfiðast er að geta ekki boðið nemendum upp á sálfræðiþjónustu. Það reyndist afar vel að hafa þann möguleika fyrir nemendur sem þess þurfa og búa fjarri foreldrahúsum,“ segir Jóna Katrín en þess má geta að í ML eru um 150 nemendur og búa þau nánast öll á heimavist skólans.

„Bókasafn ML hefur verið rekið sem samvinnuverkefni starfsfólks frá því í vor en nú í haust náðist samningur við Bláskógabyggð, sem kemur nú að rekstri starfsmanns við safnið. Það er því mikið fagnaðarefni að safnið getur opnað dyr sínar á ný fyrir íbúum sveitarfélagsins og leik- og grunnskólanum á Laugarvatni.“

Soffía segir að í FSu hafi verið lagt kapp á að draga ekki úr stoðþjónustu. „Við erum nú þegar komin að þolmörkum þar. Til að mæta niðurskurði eru hópar eins stórir og hægt er, en það bitnar á gæðum kennslunnar. Einnig skerum við niður fámenna hópa. Í garðyrkjunáminu skárum við niður tvær brautir í haust og erum að skoða niðurskurð á námsbrautum í dagskóla,“ segir Soffía.

Í FSu eru um 1.150 nemendur í heildina. Þar af um 980 í dagskóla, 30 í kvöldskóla og 110 í garðyrkjunámi.

Þurfa að vísa frá nemendum vegna plássleysis
Mikil ásókn er í báða skólana sem eru báðir svo gott sem sprungnir. Hvorki stendur til að stækka FSu eða ML í náinni framtíð en stækkunarmöguleikar eru til staðar hjá báðum skólum.

„ML býr að vönduðum og góðum húsakosti en til að hægt yrði að taka á móti fleiri nemendum þyrfti að koma til stækkun eða fjölgun húsa. Mikil aðsókn er að skólanum og frambærilegum umsækjendum er vísað frá sökum plássleysis,“ segir Jóna Katrín.

Soffía segir húsakostinn er ágætan sem slíkan en skólinn er sprunginn. „Okkur vantar pláss. Það er mikil ásókn í skólann en því miður höfum við ekki getað tekið við öllum nemendum, það bitnar á eldri umsækjendum.“

Nemendum fjölgar en skólinn stækkar ekki
Viðbygging við verknámshús FSu, sem var tekin í notkun árið 2017, rúmar ekki alla þá sem vilja komast í verknám. „Það hús er orðið of lítið enda hefur ásókn í verknámið okkar aukist mjög mikið síðustu ár sem er verulega ánægjulegt. Einnig er mikil eftirspurn eftir kvöldskóla.“

„Síðustu annir höfum við boðið upp á nám í pípulögnum. Ekki var gert ráð fyrir því námi í Hamri og það er áskorun að mæta því. Í haust fórum við af stað með nýja hópa í pípulögnum og rafvirkjun. Fengum miklu fleiri umsóknir heldur en plássin sem voru í boði.“

„Þá hefur nemendum á sérnámsbraut fjölgað talsvert undanfarin ár. Sá nemendahópur þarf fleiri og smærri rými. Við nýtum öll skúmaskot sem við mögulega getum. Að auki vantar húsnæði undir heimavist, sem er eitt brýnasta úrlausnarefnið þessa dagana,“ segir Soffía.

„Mér finnst svo mikilvægt að við hlúum vel að framhaldsskólakerfinu á Íslandi því þar erum við að gera svo glæsilega hluti og kerfið stútfullt af frábæru fagfólki,“ segir Jóna Katrín að lokum.

Fyrri greinNýr Skagfjörðsskáli fluttur inn í Langadal